Mánudagur, 9. mars 2009
hahaha...
|
Ríkið tekur Straum yfir |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 8. mars 2009
Fangelsi?
Ég man eftir því að vinur minn, þá 23 ára skuldaði ríkinu nokkrar sektir fyrir umferðalagabrot, ölvunarakstur og hraðakstur eitthvað álíka. Skuldin var reiknuð út (nokkrir 10 þúsundkallar) og hann ákvað að sitja það af sér í staðin fyrir að borga. Hann fór í 3 daga inn í fangelsið á Skólavörðustíg með nokkrar bækur sér til halds og trausts. Ég rakst á hann á kaffihúsi sama dag og hann átti að fara og mér þótti þetta hálfskrítin pæling.
En nú er ég að spá, hvað reiknast 500 milljarðar yfir á marga daga í fangelsi? Hvað eru það margar ölvunaraksturs sektir? Er það ekki bara lífstíð eða tvær? Eru þessir menn ósnertanlegir á allan hátt? Eru þeir kannski of margir? Ef spilaborgin myndi hrynja og allt liðið sótt til saka.. þyrftum við kannski að byggja nýtt fangelsi? Hmmmm, hvað með tónleikahöllina, fá Ólaf Elíasson til að breyta hönnunninni eilítið og hún yrði hinn fullkomni minnisvarði um útrásina.. hljóðeinangrað fangelsi fullt fjárglæframönnum bak við lás og slá.
Það væri hægt að opna flóamarkað í kjallaranum þar sem væri hægt að kaupa eigur þeirra á niðursettu verði, og hafa viðtalstíma þar sem þeir bjóða upp á ókeypis ráðgjöf í snekkjukaupum og Tortola reikningum ekki það að neinn þurfi á því að halda.
|
500 milljarðar til eigenda |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 8. mars 2009
upplýsingar um tengslanet
Ég auglýsi hér með eftir upplýsingum um tengslanet.. tengls alþingismanna við viðskiptalífið og auðmanna við fyrirtæki og banka og svo framvegis.. ég er að vinna í vídjói og er búin að vera að leita að þessu á netinu og finn engan stað eða lista sem tekur þetta allt saman saman í eitt net. Það væri hægt að fara í að safna bútunum saman héðan og þaðan og pússla en er ekki einhver blaðamaður löngu búin að því?
Rannskóknarblaðamaður? Er það ekki annars íslenskt orð?
Endilega sendið mér link ef þið vitið um eitthvað sniðugt.
Takk takk.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 26. febrúar 2009
Fermingarveislur og stríð
Ég fór í partý í gær þar sem ég rakst á vin minn frá Serbíu, við höfum ekki sést lengi þar sem ég var líka heima á Íslandi undanfarna mánuði. Hann spurði mig hvernig hefði verið heima og hvað væri í gangi? Ég sagði að það hefði verði frábært, rosa ástand en að það hefði átt sér stað bylting þar sem ríkisstjórninni hafi verið felld og alles. Já einmitt, ég var líka í Serbíu í byltingunni.. við sprengdum upp alþingi og brenndum niður sjónvarpsstöðina.... allt brjálað!
Svo litum við hvort á annað og fórum bæði að hlæja, hmmm Duki, við erum bara börn þegar kemur að þessu byltingar stússi, við erum ekki einu sinni með her. Þannig að okkar bylting var svona meira eins og fermingarveisla, við köstuðum eggjum og skyri og spiluðum á hljóðfæri. Ég held að það þýði þá samt að við séum komin í fullorðinna manna tölu núna og getum jafnvel gert betur næst. (vonandi samt að það verði ekkert næst)
Reyndar eru flestallir vinir mínir frá löndum eins og Íran, Serbíu, Póllandi, Latvíu o.s.frv. þau eru öll á þeirri skoðun að við höfum haft mjög gott af þessu falli, á vinalegan hátt segjandi hluti eins og þið eruð bara alvöru land núna. Þið voruð ógeðslega rík og duttuð bara niður í að vera venjuleg.. engar áhyggjur það venst.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 24. febrúar 2009
Fáranleg fyrirsögn!
Að hreppa nýja virkjun eða verksmiðju? Vá en við heppin! Vorum við að vinna í einhverju happdrætti? Sólarkísilverksmiðja hljómar líka mjög umhverfisvænt hugtak.. en þyrfi nýja virkjun til að starfa (hvar á hún að vera?) og skilar af sér eiturefna úrgangi (hvert á hann að fara)?
Kæri fréttamaður, hver borgar þér aukalaun? Eða ertu persónulega hlynntur aukinni stóriðju á Íslandi?
|
Hreppir Ísland sólarkísilverksmiðjuna? |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 19. febrúar 2009
Meira CCP!
Hvernig væri að taka 60 til 70 milljarða (áætlaður kostnaður við álverið í Helguvík) og byggja upp fleiri fyrirtæki í anda CCP? Skapandi störf fyrir menntað fólk í mannúðlegu ummhverfi. Áætlaður fjöldi helguvíkurstarfa 700. Eru það 100 milljónir á starf?
Gefðu mér 100 milljónir og ég lofa að búa allavega til 1 mjög arðbært starf. Fyrir þann pening er væri hægt að gefa öllum nemendum á háskólastigi almennilegar tölvur með nýjustu forritunum og borga þeim fyrir að læra á þau. Láta 100 manns hugsa stanslaust um hugmyndir að nýjum sprotafyrirtækjum. Breyta Granda í tölvunördaþorp, þar sem við fengjum inn erlent vinnuafl yfir meðalgreind sem myndi hjálpa okkur við nýsköpun. Þannig gæti ég talið upp 100 milljón hluti til viðbótar. Kannski er ég eitthvað rómantísk en ég held að við séum alltof vel gefin og hugmyndarík þjóð til að breytast í einhverja verksmiðjumaura, CCP er gott dæmi um það.
|
CCP með flesta starfsmenn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 8. febrúar 2009
Davíðsormurinn..
Vá, Davíð ætlar í alvöru að sitja áfram.. hann þarf eflaust að "gaffateipa" sig við stólinn því almenningur mun á endanum rölta inn í Seðlabankann og henda honum út. En þetta fer reyndar ekki einusinni í taugarnar á mér því þetta er orðið svo súrrealískt að það er bara fyndið, og þó svo að ég hafi aldrei verið aðdáandi Hr Oddssonar þá átti hann litríkan feril sem stjórnmálamaður og þetta er afar sorglegur endir. Hvað eigum við að gera?
Þegar Lagarfljótsormurinn var orðinn stjórnlaus eftir að hafa legið og stækkað á gullinu voru fengnir tveir Finnar sem komu á hann böndum svo hann ylli ekki meiri usla.. það er kannski ekki svo vitlaus hugmynd. Ég þekki einn Finna.. þá vantar okkur bara einn til viðbótar og málið er dautt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 8. desember 2008
Allir í meðferð..
Ég hef reyndar ekki sjálf farið í AA eða meðferð, en ég veit að það hefur valdið umbreytingum í lífi margs óreglufólks. Mér datt í hug að fyrst að ríksstjórnin (þjóðin) virðist gjörsamlega kjaftstopp og ráðalaus eftir stærsta peningafyllerí sögunnar, gæti hún kannski stuðst við tólf sporin til að komast út úr þynnkunni.
Spor 1. Við viðurkennum vanmátt okkar gegn fjármálum og að okkur er orðið um megn að stjórna eigin gjaldmiðli.
Spor 2. Við trúum að máttur okkur æðri, geti gert okkur heilbrigð að nýju.
Spor 3. Við tökum þá ákvörðun að leita Alþjóða gjaldeyrissjóðsins og láta vilja okkar og líf lúta handleiðslu hans, samkvæmt skilningi okkar á honum.
Spor 4. Við gerum rækileg og óttalaus siðferðileg reikningsskil í lífi okkar.
Spor 5. Við játum afdráttarlaust fyrir umheiminum, sjálfum okkur og IMF yfirsjónir okkar.
Spor 6. Við erum þess albúin að láta IMF og alþjóðasamfélagið lækna allar okkar skapgerðarveilur.
Spor 7. Við báðum IMF, Norðmenn og Rússa í auðmýkt að losa okkur við brestina.
Spor 8. Við skráðum misgjörðir okkar gegn Bretum og Hollendingum og erum fús til að bæta fyrir þær.
Spor 9. Við bætum fyrir brot okkar milliliðalaust, svo framarlega sem það særi engan (sem situr á Alþingi eða tilheyrir auðmannsstétt).
Spor 10. Við iðkum stöðuga sjálfsrannsókn og þegar út af ber, viðurkennum við yfirsjónir okkar undanbragðalaust.
Ég tel að við séum föst í 10unda sporinu en þar ætti ríkisstjórnin að segja satt og af sér. Ég læt þó hin tvö fylgja með og vona að við komumst yfir þennan erfiða hjalla á næstu mánuðum;)
Spor 11. Við leitumst við með bæn og hugleiðslu, að styrkja vitundarsamband okkar við Umheiminn, samkvæmt skilningi okkar á honum, og biðjum um skilning á því sem okkur er fyrir bestu og mátt til að framkvæma það.
Spor 12. Við finnum, að sá árangur, sem náðist með hjálp reynslusporanna, var andleg vakning og þess vegna reynum við að flytja öðrum óregluþjóðum þennan boðskap og fylgja þessum meginreglum í lífi okkar og starfi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 8. desember 2008
Húrra!!!
sér heyra.. feta ostur haekkar í Grikklandi og bensínsprengjur og
brotnar rúður út um alla borg. Einn unglingur lætur lífið og
innanlandsráðherra býðst strax til að segja af sér. Mig langar bara að
minna á að þessir menntskælingar sem réðust inn á alþingi í dag eru að
hrópa á fólk sem hefur skellt þeim í margra milljarða króna skuld og ég
reikna ekki með að þessir "krakkar" hafi verslað mikið af flatsjáum og
verðbréfum í góðærinu. Þið sem sitjið heima í stofu og nefnið erfingja
sökkvandi skips pakk og skríl, höfðuð tækifæri til að kjósa og mótmæla
undanfarin ár en ákváðuð í staðin að versla í Glasgow og sofa á
verðinum eruð í mínum augum meiri pakk og skríll en mótmælendur
nútímans. Áfram Ísland, það er komin tími til að vakna!
|
Þingfundur hafinn á ný |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)



arnim
hlynurh
prakkarinn
omarragnarsson
raudka
sij
toshiki